Góðann daginn
Verð nú bara að troða inn einni færslu þar sem það er liðið svolítið langt síðan síðast.
Sú stutta braggast bara vel og finnst henni mamma sín bara vera sú fyndnasta í heimi, hún er þó ekki farin að hlæja en brosir út í eitt og spjallar við alla, hún er orðin risa stór og vel þung eða 6 kíló og verður 2 mán eftir 2 daga, það telst nú bara vera ágætt.
Stóru systkinin eru svaka stolt og fá ekki nóg af henni.
Fyrsti skóladagurinn er á morgunn og eru Sonja og Aron orðin svaka spennt, þau eru akkúrat núna í skólaleik og Sonja er að kenna bróður sínum að lesa, hún er svaka dugleg.
En nóg um það, Íslenska landsliðið í handbolta var að enda við að vinna silfur verðlaun á ólimpíleikunum og er það bara frábær árangur, gæti ekki verið betra, þó að gullið hafi bara verið hársbreidd frá okkar mönnum að þá er silfrið mjög gott, GERI AÐRIR BETUR
Ég er stolt af mínum mönnum og óska þeim til hamingju með frábærann árangur
Áfram Ísland

Halló, halló...
Hellúúúú....
Held að það sé kominn tími á smá færslu. Það er víst mikið að gera á stóru heimili, var svona eiginlega búin að gleyma því hvað það er mikil vinna að vera með svona lítið barn, og hvað þá að vera með 2 stór börn líka, þó að það sé ekki eins mikil vinna, þá er það vinna engu að síður, en þau eru svakalega dugleg að hjálpa mömmu sinni að hugsa um litla barnið og eiga þau skilið stórt knús og marga kossa og hef ég sko ekki verið að spara þá.
Annars er litla daman algjört yndi og sefur bara og drekkur og vakir í smá stund svona rétt til að segja hæ og svo er hún farin að sofa aftur, þannig að ég verð að segja að við höfum verið svakalega heppin. Hún hefur stækkað svakalega og þyngst og braggast bara svakalega vel.
Hún líkist bróður sínum svakalega mikið en er samt eins og Sonja eins skrítið og það hljómar, en svo er hennar eigin karakter að koma í ljós og er bara skemmtilegt að fylgjast með því.
Ég setti inn nýjar myndir á Picasa síðun slóðin er hérna til hægri á síðunni.
Og... enn og aftur takk fyrir allar kveðjurnar, það er elltaf jafngama að heyra frá öllum.
Axel og Ólöf skemmtið ykkur vel um helgina og eigið frábærann brúðkaupsdag, vildi óska þess að ég gæti verið með ykkur.
Þangað til næst..............
Bara nokkur orð
Mig langar bara að þakka öllum fyrir kveðjurnar, þið eruð svo sæt.
Já prinsessan er komin í heiminn, kom þann 26 júní kl oo:o7, hún var 16 merkur og 52 cm. svaka stelpa og hún var eiginlega að flýta sér svolítið mikið, og var komin í hendurnar á mér tæpum 20 mín eftir að við komum inn á spítalann, en allt gekk vel og er hún bara dúlla og svakalega vær.
Stóru sistkynin eru voða stolt og hrifin og foreldrarnir líka.
Ég lofa að koma með meira bráðlega en núna er bara svolítið meira að gera og um leið og finn tíma þá skelli ég inn einni færslu og nokkrum myndum.
Takk aftur fyrir allar kveðjurnar
Bara smá........
Bara aðeins að láta vita af mér og að ég er enn heima og ekkert að ske ennþá.
Krakkarnir komu heim áðan og ég var ekki að gera mér grein fyrir því hvað ég saknaði þeirra mikið fyrr en þau gengu hérna inn, eða þegar ég hljóp á móti þeim út þegar Steinar kom með þau. Það var samt ekkert smá skrítið að fá þau heim, lætin og draslið sem fylgir þeim, en eftir um.þ.b. klukkutíma var allt eins og það á að vera, drasl eða ekki.
Núna er skilda að kvitta fyrir komunni, hver sem það er, bara hæ ef ekkert annað.
Þangað til næst...............................................
Gott veður
Vá, hvað það hefur verið gott veður hérna á "klakanum" síðustu daga og lítið hægt að kvart yfir því þar sem sú gula sýnir sig ekki oft. Það er þó pínu fúlt að vera óléttur á svona dögum, það er svo heitt og má ég ekki við miklu þá er ég farin að svitna á stöðum sem ég vissi ekki að væru til, en að sitja inni og horfa út er ekki eitthvað sem ég get gert þegar veðrið er svona, þannig að ég læt mig bara hafa það og þakka svo guði fyrir smá golu
Það styttist í að ég fái "ÖLL" börnin mín heim, Sonja og Aron koma heim
á mánudaginn og svo er ég sett eftir 4 daga, en það getur breyst vona bara að það verði engin löng bið.
Aron er reyndar viss um að ég verði ekki heima þegar hann komi heim, hann heldur að ég verði á spítalanum og fer ekki ofan af því, ég ætla ekki að .ræta við hann um það þar sem ég get ekki sagt til um það og gæti þess vegna verið þar þá.
Þetta á annars ekki að vera löng færsla, vildi bara láta alla vita að það er ekkert að gerast ennþá, og þakka ég þau fjölmörgu símtöl sem ég er að fá yfir daginn (væri ekkert á móti því að vera svona vinsæl alltaf).
Þangað til næst
.......................................
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí jei, það er komin 17 júní........
Gleðilegan þjóðhátíðardag.
Það er nú bara einu sinni á öld þar sem veðrið er svona á 17 júní og eins gott að njóta þess, þó var ágætt veðrið í fyrra en ekki svona gott.
Þegar ég rifja upp þennan dag frá því að ég var krakki þá man ég bara eftir því að fólk hafi verið í úlpum og með regnhlífina í hendinni, því það rigndi alltaf og gerir enn, það kanski sýnir manni að hlýnun jarðar er eitthvað til að hafa áhyggjur af þegar það er sól og 17 stiga hiti á þessum degi.
En ekki kvarta ég yfir deginum í dag, þó að það hafi verið svolítið skrítið að halda upp á þennan dag án krakkana, en ég var að skella á þau í símanum og þau eru bara búin að hafa það svakalega gaman í dag. Sonja fór með ömmu sinni í skrúðgöngu (Aron var í tölvunni með Rúnari) og svo fóru þau á hestbak og Sonja vildi fá að stjórna hestinum sjálf og gerði það víst með glæsibrag, hún er svo dugleg, litla stelpan mín. En það er samt pínu skrítið að vera að segja frá þessu en ekki hafa verið viðstödd.
Þá er allt tilbúið fyrir skvísuna og bara farið að bíða eftir henni og þá aðallega Steinar sem ákvað að klippa sig ekkert á meðgöngunni og núna er hann komin með hár niður á axlir og er að verða vitlaus á því, það er að þvælast fyrir augunum á honum og núna suðar hann í mér um "punga þessu út" eins og ég geti ráðið því, en hann ætlar ekki að gera neitt fyrr en hún fæðist svo að hann verður að biðja hana fallega, ekki mig.
Jæja held samt að þetta sé nóg í bili, þangað til næst......................
10 DAGAR!!!!!!
Hvað á ég að gera núna?
Krakkarnir fóru til ömmu sinnar í gær og núna sit ég hérna heima búin að vera spila kapal í tölvunni síðan 8 í morgunn og borða popp........
Búin að þvo barnafötin, ætlaði að gera það yfir vikuna en einhvern veginn kláraðist það í gær, þannig að það er ekkert eftir nema að sitja með tærnar upp í loft og gera ekki neitt
Ég kann ekkert á þetta, en ég verð bara að læra.
Núna eru 10 dagar í að þessi skvísa komi í heiminn, og það er eins gott að þetta sé stelpa, því annars verður þetta mjög stelpulega klæddur strákur, en að fá að heyra að þetta sé stelpa mörgum sinnum er aðeins róandi, og að fá að sjá það í þrívídd, verð bara að taka mark á því, þannig að núna er bara að bíða og bíða, á reyndar eftir að ná í vögguna þannig að hún verður að bíða allavega í nokkra daga í viðbót.
Biða bara að heilsa, ætla að fara að glápa á imbann og bíða eftir að geta hringt vestur í krakkana.
Þangað til næst......................
Hnútur í maga og bjúgur á fótum...........
Þá er stór helgi að baki og eitthvað allt annað að fara í gang.
Nú eru 15 dagar í settann fæðingardag og ekki er laust við að maður sé með svolítinn hnút í maganum, ekki endilega kvíðahnút heldur meira svona spennu hnút, en þó verð ég að viðurkenna að það er pínu stutt í þetta og mamman er ekki alveg tilbúin, alltí einu varð þetta svo fljótt að líða og og svo stutt í þetta, en ef þetta verður eitthvað eins og með þau fyrri þá hef ég alveg 4 vikur enn og það er alltí lagi mín vegna.
Sonja og Aron héldu upp á afmælið sitt í gær með pompi og prakt, það var svaka stuð og góð mæting og þau fengu ALLT sem þau vildu, og eru svo ánægð með allt saman, ekkert smá heppin. Þá er Aron mest ánægður með trampólínið sem hann fékk og ljósaskóna, og Sonja með Bratz dúkkurnar, fötin og hjólaskóna, sem slógu í gegn.
Nú er vika í að börnin mín fari til ömmu á Grundarfirði og verða í heila viku, það er búin að vera svo mikill spenningur fyrir þessari ferð að það var búið að pakka fyrir ferðina fyrir viku síðan, þá bara dóti en það er ekki talað um neitt annað allann daginn, það er gaman að þeim hlakkar svona til því ekki er mamman á sömu síðu, ég er einhvernvegin viss um að mér eigi eftir að leiðast svolítið á meðan en allir að segja að ég eigi bara að slappa af, en þeir sem þekkja mig vita að það er eitthvað sem ég kann ekki að gera, ég verð að hafa eitthvað að gera. En á hinn boginn er það alveg satt, þetta verður bara til góðs að geta slappað af ef það kemur þreyta yfir mann og svo er síminn alltaf góður í svona aðstæðum, þannig að ég á alveg að lifa þetta af.
En núna ætla ég að leggjast í sófann með fæturna upp í loft því að ég er
komin með hjartslátt í þær út af bjúg.
Þannig að ég bið bara að heilsa til allra landshorna og landa.
Þangað til næst.............
Mánuður þangað til pabbi kemur, vííííí 
6 Júní
Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli í dag,
Hún á afmæli hún Sonja Lif
Hún á afmæli í dag.
Já litla stelpan er orðin átta ára í dag, þetta er sko fljóitt að líða.
Elsku Sonja Líf mín til hamingju með daginn.
xxxooo
2 Júní
Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli, Hann Aron Karl
Hann á afmæli í dag.
Ég bara varð að koma þessu frá mér, Litli strákurinn minn er orðinn 6 ára og ekkert smá ánægður með það.
Svo til hamingju með daginn elsku vinur.