Innskráningar kubbur

Hnútur í maga og bjúgur á fótum...........

09. júní 2008 klukkan 20:39

Þá er stór helgi að baki og eitthvað allt annað að fara í gang.


 

Nú eru 15 dagar í settann fæðingardag og ekki er laust við að maður sé með svolítinn hnút í maganum, ekki endilega kvíðahnút heldur meira svona spennu hnút, en þó verð ég að viðurkenna að það er pínu stutt í þetta og mamman er ekki alveg tilbúin, alltí einu varð þetta svo fljótt að líða og og svo stutt í þetta, en ef þetta verður eitthvað eins og með þau fyrri þá hef ég alveg 4 vikur enn og það er alltí lagi mín vegna.

 

Sonja og Aron héldu upp á afmælið sitt í gær með pompi og prakt, það var svaka stuð og góð mæting og þau fengu ALLT sem þau vildu, og eru svo ánægð með allt saman, ekkert smá heppin.  Þá er Aron mest ánægður með trampólínið sem hann fékk og ljósaskóna, og Sonja með Bratz dúkkurnar, fötin og hjólaskóna, sem slógu í gegn.

 

Nú er vika í að börnin mín fari til ömmu á Grundarfirði og verða í heila viku, það er búin að vera svo mikill spenningur fyrir þessari ferð að það var búið að pakka fyrir ferðina fyrir viku síðan, þá bara dóti en það er ekki talað um neitt annað allann daginn, það er gaman að þeim hlakkar svona til því ekki er mamman á sömu síðu, ég er einhvernvegin viss um að mér eigi eftir að leiðast svolítið á meðan en allir að segja að ég eigi bara að slappa af, en þeir sem þekkja mig vita að það er eitthvað sem ég kann ekki að gera, ég verð að hafa eitthvað að gera. En á hinn boginn er það alveg satt, þetta verður bara til góðs að geta slappað af ef það kemur þreyta yfir mann og svo er síminn alltaf góður í svona aðstæðum, þannig að ég á alveg að lifa þetta af.

 

En núna ætla ég að leggjast í sófann með fæturna upp í loft því að ég er
komin með hjartslátt í þær út af bjúg.


Þannig að ég bið bara að heilsa til allra landshorna og landa.


Þangað til næst.............

 

Mánuður þangað til pabbi kemur, vííííí     Hlæjandi

 
Amma Jóna
Hæ hæ
Þá er að koma að því að fá "skæruliðana" í heimsókn. OOOOHHHHH hvað ég hlakka til.........
Það á að fara í útilegu upp í Híð og svo er Akurtraðamótið og þá er meiri útilega, alveg fullt að gera. Vildi bara að foreldrarnir gætu komið líka.
Vona bara að þau pakki líka niður hlýjum fatnaði, vatnsheldum fatnaði og svo því ómissandi, stuttbuxunum. Það er nefnilega von á alls konar veðri eins og vanalega á Íslandi.
Kær kveðja
amma Jóna tengdó
#1
12. júní 2008 klukkan 09:40

Skrifa athugasemd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Myndir