HÆ!
Hvað er uppi??
Ég var eiginlega búin að gleyma því að ég sé með bloggsíðu eins og það sést kanski, en ég ætla nú að breyta því, allavega smáfærslu.
Þá er loksins búið að skýra litlu dúlluna þeirra Írisar og Jóa, og var hún skírð í höfuðið á ömmu sinni og mömmu (og eiginlega mér líka) en hún heitir Gígja Björk, og passar það henni bara mjög vel, þetta var meiriháttar veisla, og stóð langt fram á kvöld, hún Gígja kann sko að halda partý, það er á hreinu. Og gjafirnar, ég held bara að ég hafi aldrei séð svona margar gjafir áður nema í brúðkaupsveislum, og allt meira og minna bleikt, loksins þegar það kemur stelpa hjá þeim er öll íbúðin þeirra orðin bleik.
Mín er bara búin að vera að keyra fyrir UPS og er að fíla það í botn, það er reyndar bara tímabundið þar sem ég er að leysa einn bílstjórann af í sumarfríi, en þetta er fínt, keyra svona eins og 170 km. á dag og hitta allskonar skemmtilegt fólk, þó að þau séu misjafnlega skemmtileg er þetta samt gaman, og svo er ég að komast upp á lagið með að keyra þennan stóra bíl, en það er ekki auðvelt að bakka á honum, sérstaklega ef maður sér ekki hvert maður er að bakka, en það kemur með tímanum að finna þetta út, vonandi fyrr en síðar.
þangað til næst.............
Besta dóttir í heimi
Ég fæ ekki þann titil í nánustu framtíð það er alveg á hreinu. Pabbi kom í gær og var ég búin að ákveða að sækja hann á flugvöllinn, nema hvað að þegar að klukkan var að verða 4 var ég föst í vinnunni og svo hringdi stelpa sem á hús í keflavík og er að fara að leigja það, í mig og bað mig að koma og skoða það, þannig að pabbi greyið beið og beið á flugvellinum, og á endanum sóttur af systur sinni, Ég skammast mín svo en eins og pabbar gera, þá gleymdi hann því um leið og við hittumst, en svona er ég. Pabbi gaf krökkunum dót sem sló sko alveg í gegn, þau meira að segja voru lítið sem ekkert feimin við hann, ég átti von á því þar sem að við höfum ekki hitt hann síðan um jólin ´05 eða í 1 og hálft ár, og það er langur tími, en hann stoppar stutt og ætlum við að reyna að nýta tímann vel, hann er að koma í humar á sunnudaginn, mmmmmmm love lobster.
Annars er Halldóra Jóna búin að vera hérna síðan á sunnudaginn að passa fyrir mig allann daginn, en Maggi kom að sækja hana í gær og svo kemur hún aftur á morgunn og verður fram á föstudag, hún er svo mikið æði og svo dugleg með krakkana, mig langar bara að segja við þann sem datt í hug að hafa leikskólana lokaða í MÁNUÐ á ári "HVAÐ VARSTU EIGINLEG AÐ HUGSA"?? Reglurnar segja að barn verður að vera í sumarfríi í heilan mánuð en eins og það er í Reykjavík þá eru leikskólarnir lokaðir í 2 vikur og maður getur þá ráðið hvoru megin við þær tvær vikur maður tekur hinar tvær vikurnar, en hér í "fjölskyldubænum" þá eru leikskólarnir lokaðir í heilann mánuð og meira að segja 5 vikur og þá verða allir bara að taka sumarfrí á sama tíma, ekki sniðugt maður er bara skikkaður í sumarfrí á fyrirfram ákveðnum tíma og ekki ákveðinn af mér eða mínum, ég ætla bara að fara í framboð og láta breyta þessu :) Nei nei en það má alveg breyta þessu aðeins, þannig að maður fái einhverju ráðið um fríið sitt sem maður tekur.
Ætli sumarið á Íslandi sé búið? Það er búið að vera svo gott veður í júní og svo er byrjað að rigna, að núna held ég að það komi bara ekki aftur gott veður, ég tek alltaf sumrinu á Íslandi með fyrirvara og það breytist ekkert héðan af, mig langar bara að komast í útilegu og njóta sumarsins en ef það er búið þá fer ég í fílu og sel þennan tjaldvagn, ef það á ekkert að nota hann þá hef ég ekkert við hann að gera.
En þessi bitra, ekki besta dóttir í heimi biður bara að heilsa öllum og krossleggið allt sem hægt er að krossleggja, og vonum eftir góðu veðri það sem eftir er af þessu svotil ágæta sumri
Þangað til næst.............................
Hellúúúúú!!!!!!
Jæja þá er maður byrjaður í nýju vinnunni og líkar bara vel, mig langar þó ekki að tala í síma þegar ég kem heim, geri nóg af því að daginn, en annars er þetta bara fínt, starfsfólkið er rosalega fínt og almennilegt og svo er maður eitthvað svo frjáls og ég er ekki vön því í vinnunni, en ég held að mér eigi eftir að líka það vel.
Svo er pabbi að koma á föstudaginn og hlakkar mig mikið til, ég held að það séu komin tæp tvö ár síðan ég sá hann síðast þannig að það er komið á tíma, jibbííííí.
Þreytt eftir daginn bið að heilsa síjú