Innskráningar kubbur

Bleikt og Blátt

28. nóvember 2007 klukkan 20:23

Það hefur lengi verið deilt um hvort karlar hafi það betra en konur, hvort sem það sé heima eða úti á vinnumarkaðinum og kanski ekki mikið um að deila þar sem það er ekkert leyndarmál að karlar hafa verið með hærri laun en konur frá upphafi, en sem betur fer erum við sem lifum á 21 öldinni farin að sjá breytingar á því. Ég hef undanfarið heyrt umræðu í fjölmiðlum um að nú sé komið að því að breyta hefðum sem eru 1000 ára gamlar og merkingum á ungabörnum á fæðingardeildinni, ráðherra er nú ekki nógu fínt fyrir konur og bleikt og blátt ekki gott fyrir ungabörnin uppá framtíðina að gera.


Hvað á þá að kalla konur sem hafa þann virðulega titil "ráðherra" Ráðfrú? það hljómar eins og fínt orð yfir ráðskonu (börn engin fyrirstaða Brosandi). Annars er ég ekki sú eina sem er með þessa skoðun á þessu máli, ég hef endalaust heyrt háðsyrði yfir þessa tillögu f.v. borgarstjóra en hvað um það þá finnst mér ráherra virðulegt orð eða titill og sé engann tilgang að breyta því.


En hvers eiga börnin að gjalda? Heyrði semsagt í dag að það sé ekki góð hugmynd að litgreina börn á fæðingadeildinni, það er bleikt fyrir stúlkur og blátt fyrir stráka, það hefur víst eitthvað með hlutverkaskipti þeirra í framtíðinni að gera, skil reyndar ekki hvað það hefur með það að gera, hvort sem það er gert á fæðingadeildinni eða ekki þá má gera ráð fyrir því að foreldrarnir sjái um að klæða börnin sín í fötin og það veit hver móðir að það er ekki gaman að svara spurningunni "er þetta stelpa eða strákur?" mörgum sinnum á dag og hafa séð  sér þann leik á borði að klæða börnin í bleik og blá föt til að aðrir sjái hvort kynið það er. En með framtíðina að gera þá er það einnig hlutverk foreldrana að fræða börnin sín og koma í veg fyrir hlutverkaskipti í þjóðfélaginu, held að það breyti engu hvort að við sjáum fullt af gulum og grænum krílum eða bleikum og bláum.

 

Bara smá útrás, þangað til næst............................

Hó Hó Hó

26. nóvember 2007 klukkan 20:24

Kanski ekki alveg strax en það fer að koma að því. Sonja er farin að telja niður dagana þangað til Jólasveinninn kemur til byggða og ég fæ statusinn beint í æð svona 5-6 sinnum á dag, (ekkert sérlega hrifin af því og það lagar ekkert hnútinn í maganum). En með þennan kvíða þá er ég svona nokkurn vegin góð, ekkert að fá kvíðaköst eða þennan öra hjartslátt sem ég fékk alltaf, þannig að í þá áttina er allt eins og það á að vera.


 

Það er annars allt gott að frétta hjá okkur, Steinar er bara alltaf að vinna og er reyndar heima hjá konunni sinni á kvöldin og er dugleur að ylja á heni tærnar og snúast í kringum rassgatið á henni :) Ég viðurkenni að ég er pínu dekruð, en ég er handviss um að það sé bara gott fyrir sálina. Sonju gengur bara vel í skólanum og les og les og les.....  og er mamman bara ánægð með það enda ekkert slæmt við að hún skuli vilja lesa svona mikið, kennarinn hennar er mjög ánægð með hvað hún er viljug til að lesa og gera stærðfræðina, ég bara bið til guðs um að það sé eitthvað sem haldist til unglingsáranna. Aron Karl er alltaf í fótboltanum og finnst það svaka gaman, hann hefur tekið miklum framförum, hann á reyndar átrúnaðargoð og er það hann Logi, hann er með honum í leikskólanum og í fótboltanum og eru þeir bestu vinir, nema Aron heldur að hann sé einvherskonar guð, Segir við mig "mamma Logi getur hlaupið hraðar en bíll" eða "mamma Logi er bestur í fóbolta í heimi" það er ekki auðvelt að fá hann til að trúa því að Logi er bara mennskur en það kemur, þetta er reyndar pínu sætt.


 

En það styttist í jólin og ekkert við því að gera, ég er náttúrulega búin að taka allt jólaskrautið fram en hef ekki enn komið mér í að setja það upp, kanski vegna þess að ég hef ekki komið mér í að þrifa gluggana og ekkert skraut fer í þá nema þeir séu hreinir og þá verð ég bara að gera það einn daginn,  á morgunn segir sá lati.


 

En ég bið bara að heilsa til allra landa og minni á að það eru 6 dagar í fyrsta í aðventu.

Þangað til næst..............

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Myndir