Hörmulegur vetur............
Já það er opinbert og ekki farið fram hjá neinum að þetta er búið að vera hundleiðinlegur vetur, og allt sem honum fylgir. Veikindi, rigning, rok og snjókoma. Já snjórinn hefur verið rosalega mikill og kanski of mikið af því góða, þetta hefði verið í fína lagi þegar maður var yngri og þurfti ekki að komast í og úr vinnu, það er hægara sagt en gert að gera það þegar maður kemst ekki einu sinni út af planinu og engu líkara en að við hérna í Grænásnum (hverfinu sem ég á heima í) erum eitthvað minna mikilvægari en allir hinir og ekki þess virði að skafa nema bara á kvöldin, og þá er vinnudagurinn bara búinn, jebb lokuð inni og ekki bara einu sinni í vetur heldur tvisvar, rétt eins og í gamla daga.
Og ekki er ég búin að kvarta, virðist vera það eina sem ég geri hérna á þessari síðu, skrifa þegar ég þarf að fá útrás. En það er veikindin sem hafa herjað á þessa fjölskyldu, ég búin að vera veik 2 sinnum á þessu ári og núna er Sonja Líf lasin með hita og ég kemst ekki í vinnu, þar af leiðandi að rotna hérna heima hjá mér og líður ekki vel yfir því, sérstaklega þar sem veðrið er þannig að það væri tilvalið að komast á skíði ef ég ætti einhver, en það er annað mál, veðrið er allavega tilvalið til þess.
Annars er eitt sem hægt er að gleðjast yfir og það er að allt kom vel út úr sónarnum hjá mér og lítil dama að koma í heiminn 24 júní (tek hvorutveggja samt með fyrirvara) Já það er eitthvað til að hlakka til, og svo náttúrulega þegar veturinn er búinn og krakkarnir orðnir frískir og sólin komin upp, þá fer nú að birta til, fæ bara smá yl í hjartað að hugsa til sumarsins, En þú?
Þangað til næst.......................................